Hrafn Jónsson
Biography
 
Krummi

Mig grunar að ég hafi byrjað að setja saman þessa litlu ferilskrá því að þetta er það sem ég vil gera, allt þetta dót. Ég geri fátt annað en að dást að hönnun annara, hef áráttufíkn í ljósmyndun og reyni að kvikmynda mig til Hollywood.

Ég á erfitt með að einskorða mig við einhvern einn vettvang. Ég hef unnið með vefsíður síðan ég var 14 ára, en á móti er kvikmyndagerð yfirgripsmesta ástríðan mín. Samt eyði ég hvað mestum tíma í að taka og vinna ljósmyndir, svo það er enganvegin skýrt hvar ég ætti að vera. Þannig að þessi vefsíða er alveg jafn mikið smá tilraun til að skilgreina mig sem sköpuð, og hún er sölutól

Ég lærði Margmiðlun í rúmlega ár og hef auk þess tekið að mér einhverskonar verkefni í öllum þessum geirum, þannig að það er reynsla til staðar. Ég skilgreini mig ekki sem atvinnumann og laun sem ég fer fram á í verkefnavinnu endurspegla það. Ótæmandi listi yfir hugbúnað sem ég hef notað og kann á er hérna til hægri.

Ef ykkur vantar frekari upplýsingar eða viljið hafa samband bendi ég ykkur á "Samband" dálkinn til vinstri.

-Hrafn Jónsson

 
© Hrafn Jónsson '2007. Bannað að stela nema með leyfi.